4.11.2008 | 15:30
enn þá þakkir
ennþá þakkir, nú hef ég verið í gær og í dag verið að tala við fólk og við erum svo sammála að veislustjórarnir Arna og Ingunn fóru á kostum og stóðu sig svo vel. Knús til ykkar og takk fyrir sönginn
Skreytingarmeistarar frá föstudeginum Eygló Linda sá um bogan og veisluborðið sem var gjörsamlega frábært hjá henni þessari elsku. síðan allar þær sem lögðu á borð og hjálpuðu mér endalaust knús.
Við erum enn að rifja upp allt kvöldið og skellihlæjum þetta var svo dásamlegt alltsaman.
Gunni byrjaður að læra á fullu og ég að vinna í því að selja Hreyfigreiningu sem gengur nú alveg ágætlega var að tala við áhugasama nr. 2 þannig vonandi get ég selt þetta og helst fengið vinnu sjálf það væri flottast. Vona það besta og er vissum að það kemur eitthvað skemmtilegt úr þessu öllu.
En farin að æfa engin pása lengur demit
knús
Beta
3.11.2008 | 07:02
Afmælið og brullupið
Allt er gott sem endar vel
yndislegur dagur og frábært laugardagskvöld sem var algjörlega dásamlegt.
Mig langaði svo að þakka mörgum en náði ekki að gera það það sem annað stuð og gleði náði alltaf tökum á mér.
Fanney sem tók ljósmyndirnar stóð sig eins og hetja og á miklar þakkir skilið, Haddy mamma hennar gerði kertin og síðan Kiddi maðurinn hennar og pabbi Fanneyjar sá um hljóðkerfið.
Ingibjörg Ýr dóttir Kollu vinkonu spilaði í kirkjunni á undan athöfninni og frétti ég að hún hafi staðið sig eins og hetja.
Fullt af vinkonum og vinum hjálpuðu á föstudeginum og laugardeginum og er það ómetanlegt.
Siggi Rabbi og Kata sem er systir Eiríks vinar minns stóðu í matarstússi og er það stór þáttur á hvernig til tókst með matinn að fá þau með okkur í lið enda var þetta öðruvísi og frábært.
Siffi kærasti Rakelar frænku sá um snitturnar, Thelma og Bogga hjálpuðu honum en hann stóð síðan einn um daginn og smurði 900 stk.
Óli Jói prestur var frábær og athöfnin yndisleg.
Kórinn minn stóð sig frábærlega og mér fannst æði að syngja eitt lag með honum. Ein í kórnum er blómabóndi og seldi mér blómin og gerði vöndinn okkar Auðar.
Siggi vinur minn keyrði okkur, sem var nú frekar krúttlegt því Gunni hefur aldrei hitt hann og spurði hver keyrir eða eigum við bara að keyra sjálf, en ég horfði á hann og sagði nei ég hitt alltaf Sigga og strákana einu sinni í viku og fæ hann bara, Gunni horfði á mig og sagði, þetta hljómar ekki vel en þegar þú átt í hlut þá bara fyndið.
Harpa Rós vinkona kom með hangikjöt og kjöt til okkar, besta kjöt í heimi segi ég nammi namm allt best að austan.
Greifarnir dásamlegir og frábært að horfa á dansgólfið og sjá allt fólkið dansa. Gunni dásamlegur að spila úr á ofan alveg í hans anda.
Hreindýratoppurinn var gerður af Jónu Björk og keipurinn einnig og var ég ótrúlega heppin því mér fannst fötin æði.
3 ungar stúlkur komu og unnu í eldhúsinu í sjálfboðavinnu því þær voru með á hreinu að þetta yrði skemmtilegt og stóðu þær sig frábærlega.
Mamma og pabbi stóðu vaktina að ganga frá öllu og gáfu okkur eftirréttinn sem var frábær. Auður tengdó borgaði matinn.
Erla Bjarney frænka fór og reddaði mér þvílíkum afslætti í osta og annað þannig ég á nú osta fyrir veturinn (-; Hrefna mín og fleiri stóðu sig ótrúlega vel með að hjálpa mér á síðustu metrunum.
Þá koma mistök afmælisins hí hí ég sit uppi með kassa af Bailys því það gleymdist að bera fram, síðan um nóttina fór ég inn í kæli og þá sá ég að 19 kassar af bjór sem aldrei voru bornir fram, demit það átti engin að kaupa vín en sorry kæru vinir ef þið keyptu en ég átti nóg en þjónarnir bara klikkuðu á þessu atriði og við Gunni að kíkja ekki inn í eldhús og tékka. En ég held að ég hafi dansað af mér fæturna þannig ég mátti ekkert vera af því að hugsa um vín. En einhver sagði að það hafi verið nóg vín samt.
Gjörsamlega frábært að fá krakkana með í lið og Auður söng eins og engill og Reynir stóð sig vel þessi elska.
Takk takk takk takk takk takk takk fyrir allar gjafirnar og elskulegheitin. Nú eru 10 ár í næsta geim!! byrjuð að hlakka til.
hlakka til að heyra í ykkur og set myndir síðar inn eða á facebook
knús og kossar
Frú Elísabet
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 07:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.10.2008 | 07:05
Gjafalisti og fleira
Jæja, vaknaði í gær með þynnku eins og á góðum sunnudegi nema hinir sunnudagarnir eru betri, eftir vel heppnað vinkonukvöld á laugardeginum. Frábært kvöld með yndislegum vinkonum.
Komu mér reyndar frekar mikið á óvart þar sem ég var búin að gefa út ekkert gæsadæmi. Takk stelpur fyrir að vera vinkonur mínar þetta var frábært.
Mér er bent snyrtilega á það að gera gjafalista sem ég ætlaði ekki að gera en eftir þvílíkar ræður og ég yrði og allt það er hér eftirfarandi listi.
Gjafabréf í Kringlunni þar sem við skötuhjúin ætlum að kaupa skíðadót og annað fallegt
Gjafabréf í Epal en þar vinnur hún Vala Ólöf mín og sýndi mér staðinn sem reyndist vera með svo mikið að ég er steinhissa.
Við ætluðum að velja okkur rúm í svefni og Heilsu en ekki alveg öruggt þannig ég skít því hér inn ef við erum ákveðin með það. Ekki að gefa okkur rúm heldur gjafabréf þar (-;
Annars hlakka ég rosalega til að hitta alla og mun reyna að blogga meira fram að 1.nóv en segi just in case munið góða skapið og hlakka til að sjá ykkur.
Dagskráin:
Háteigskirkja kl.17:00
Félagsheimilið á Seltjarnarnesi þar strax á eftir
um miðnætti byrja Greifarnir og spila
Um 1 þá tekur diskótek við með öllum okkar uppáhaldslögum
2-3 er slut og allir hamingjusamir
knús og kossar
Beta
15.10.2008 | 09:16
eftir kreppuna mína
Hvernig náðir þú þér upp úr öllu?er ég ávallt spurð, einnig "ekki gæti ég þetta eins og þú" bull og vitleysa við berjumst þegar við þurfum að berjast. það skrítna við tímann að hann tifar og heilar sárar og vondar stundir og breytir þeim í reynslu og þá er von að við nýtum það áfram því við höfum öðlast reynslu og færni sem ekki verður af okkur tekið. Síðan leikum við á tímann með því að vera með markmið og skrifa niður drauma okkar þá hættum við að láta tímann líða án þess að vera bara til, heldur bíðum spennt eftir hverjum degi með ný verkefni mis erfið eða skemmtileg.
Ég átti mér draum og fannst vá 4 ár að láta hann rætast frekar mikið en þau eru liðin og eftir hálfan mánuð verður enn einn draumur minn að veruleika. Fyrst langaði mig að læra eitthvað sem hentaði mér og þá fann ég næringarþerapíuna ups námið kennt í Danmörku en ég hélt minni stefnu þó ölduhæð væri mishá. Síðan pirraði það mig að hafa ekki klárað stúdentinn þannig ég stökk í það og kláraði það og hafði mjög gaman af því. En allt voru þetta markmið fyrir 40 ára aldurinn og ég náði því. Hitt markmiðið eða draumur er eftir hálfan mánuð
Síðan eru það næstu markmiðin! komin á teikniborðið!
Munur á draumi og markmiði er að markmiðið lætur drauminn rætast.
Skrifið markmið
fékk í morgun gullkorn dagsins frá www.Velgegni.is sem mér finnst vel eiga við.
Trúðu á sjálfa/n þig. Þú öðlast styrk, hugrekki og sjálfstraust í hvert skipti sem þú öðlast nýja reynslu, ef þú staldrar við og horfist í augu við óttann. Þú verður að framkvæma það sem þú telur að þú getir ekki -
Eleanor Roosevelt.
knús
Beta
11.10.2008 | 23:04
ólíkar kreppur
Fyrir 7 árum síðan skall á mig kreppa. Fyrst missti ég heilsuna sem kom algjörlega óvænt, síðan fjárhaginn sem meðhjálpari heilsukreppunnar.
Herbergi sem ég dvaldist í á Grensás að ég hélt mjög tímabundið (6 mánuði), var einn daginn keyrður inn hjólastóll, mér var tjáð að það kæmi iðjuþjálfi til að kenna mér á stólinn, mínir draumar og vonir hurfu og mér fannst vonlaust að geta dregið andann og kvíðinn og vonleysið algjört. Þegar ég skrifa þetta blossar tilfinningin upp sem ég lifði þennan tíma. Ég var stjórnlaus allt í einu með mitt líf, hvað ef ég dey frá börnunum mínum? hvað verður um þau og Gunna? allt í einu var allt í lausu lofti og ég réði engu og það var mjög erfitt þar sem ég gat áður ávallt stjórnað mínu lífi og örugglega líka nokkuð mikið lífinu hans Gunna. Ég neitaði að setjast í stólinn góða sem keyrt var inn til mín og tók það tvo daga að telja mér trú um að það mundi auðvelda mér lífið að ferðast um í hjólastól. Ég horfði á litlu dóttur mína 5 mánaða og gat alls ekki haldið á henni og fimm ára sonur minn sem gaf mér að drekka og um leið þurrkaði slefið því ekki hafði ég stjórn á öllu. Þurfti bleigju því ég gat pissað á mig þá og þegar. Sambandið mitt var farið að ber þess merki að áfall hafi ögrað því og stefndi ekki í góð mál. Guð hvað þetta var ósanngjart og erfiðir tímar sem í minningunni hafa gert líf mitt sterkara og kennt mér svo margt. Fyrir allan þann pening sem ég tel mig hafa tapað vil ég ekki nú í dag fá þann pening aftur í skiptum fyrir reynsluna.
Ótrúleg lífsreynsla að keppast við að byrja að ganga um leið og dóttir mín sem betur fer var svo glaðlynd og værukær að hún leyfði mömmu sinni að vinna þá keppni, en sat og sendi mér stórt og bjart bros í hvert skipti sem ég barðist að taka skref í göngugrind, en það hvarlaði ekki að henni að reyna, fannst bara gott að sitja á sínum rassi og brosa og reyndist hin mesti gleðigjafi og vitamínsprauta
Mamma mín stóð eins og stytta við hlið mér og var með Auði alla daga á Grensás og þurfti að hugsa um barnabarn og jafnframt styðja dóttur sína á erfiðum tímum sem hefur eflaust verið mjög erfið staða og ekki öfundsverð. En ómetanlegt fyrir mig að hafa hana. Spáið í hvað ég var heppin að hafa hana.
Síðan kom oft skömm þegar ég náði bata og mér fannst erfitt að horfa á vini mína frá Grensás ekki ná þessum áfanga þannig allt í einu var ég milli steins og sleggju og grét af því ég var að jafna mig en ekki þeir (iðulega strákar úr erfiðum slysum með mænuskaða)
Síðan missti ég og Búbba fyrirtækið okkar, sem í dag hefur skilað milljónum til þess sem keypti það, sem í raun að mér finnst stal því af okkur. Ég missti ótrúlega mikið t.d. í launum og Tryggingarstofnun borgið mér 65 þúsund á mánuði í tvö ár ( en átti að fá 300 þ í mánaðarlaun) og kraftar mínir leyfðu ekki að berjast fyrir aukatekjum þannig þetta varð að duga. Stundum átti ég ekki fyrir mat og gat hringt í pabba sem reddaði mér strax auðvitað, en frekar aumt að þurfa að gera það þegar nokkrum mánuðum áður allt var svo bjart. Man eftir tímum að þúsundkarlarnir voru í bunkum inn í skáp og ég teygði í einn fimmarra þegar ég þurfti.
Hélt að Grenás væri nóg en Þurfti síðan að leggjast inn á Reykjarlund í marga mánuði en búin að vera á Grensás í svo marga mánuði, en mér fannst að ég ætti að vera heima að fagna því að vera á lífi en kraftar mínir og heilsa var ekki í þeirri stemmingu. Allir sögðu "ert þú ekki þakklát að fá að lifa og hver dagur sigurhátíð?" en heilsan mín var þannig að ég gat það ekki, mig langaði frekar að gráta hvern dag og helst ekki þurfa að horfa á litlu englana mína því ég hafði ekki krafta til að hugsa um þá. Mig vantaði hjálp og allir svo glaðir að ég hafði lifað að þeir í feginleika gleymdu að ég þurfti hjálp sem ég skil mjög vel, ég bað ekki um hana. Hefði reyndar ekki getað með nokkru móti lifað án Hrefnu minnar sem gjörsamlega bjargði mér, t.d. kom heim frá spítala dvöl (sem gerðist mjög 0ft) og búið að þrífa allt, sem reyndar Badda mín gerði einnig þegar hún gat og var í bænum.
Tekjuskerðingin var gífurleg og spariféð notað í daglegan rekstur, þar með fór það sem betur fer í dag en súrt þá.
Einn daginn eftir ótrúlegt ferðalag og áræðni að ná heilsu og geðheilsu var ég ákveðin í að láta drauma mína rætast og hóf ótrúlega skemmtilegt ferðalag að "láta drauma mína rætast" sem hefur verið gefandi, lærdómsríkt fyrir mig og mína.
Stundum hugsa ég að mín kreppa er búin, en málið er að allir geta lent í erfiðleikum eins og sumir vinir mínir sem hafa misst allt sitt, orðið gjaldþrota og ég horfði á þá á erfiðum tímamótum en allir risið upp og unnið úr sínu. Ég vann úr minni kreppu sem var mjög erfið, það er áfall að missa heilsuna og fjárhaginn í ólag. En það að gefast ekki upp er ákveðin áræðni sem ég þakka fyrir að mér var gefið í gjöf, mér fannst oft tímarnir erfiðir og tjónið mikið en horfði á börnin mín og þakkaði fyrir að það var ég en ekki þau sem heilsan snérist um, stundum fannst mér að þau ættu betra skilið en skildi síðan að þetta hefur kennt þeim heilmikið og sérstaklega það að vera sjálfstæð. Reynir Rafn er ótrúlegur þegar hann þarf að redda sér þá gerir hann það er stundum núna full sjálfstæður og Auður getur sætt sig við ótrúlega marga hluti og ávallt hægt að ræða málamiðlun við hana.
Þegar ég lít yfir farin veg þá veit ég að jeppinn, húsið eða hvíta sófasettið telur lítið en stundirnar sem ég á með vinum mínum og fjölskyldu verður það sem stendur uppúr.
Mér finnst mjög ósanngjarnt að fólk sem sparar, missi sitt, en mér finnst líka ósanngjarnt að fólk sem hefur lifað þokkalega missi heilsu sína og allir peningar í heiminum koma ekki að gagni til að bæta það.
Mig langar að segja takk fyrir að vera vinur eða fjölskyldumeðlimur og takk fyrir að lesa þetta og á morgun kemur nýr dagur og nýjar vonir því eitt get ég sagt sem ég veit að ég lifði fyrir að "Á MORGUN ER NÝ VON OG ÉG VONA ÞAÐ BESTA" ekki gefast upp þetta er súrt en hver dagur hefur sína von og heilun.
Með hlýjum hug og von í hjarta,
Beta Reynis
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
9.10.2008 | 09:14
Gleðidagur
Gunni minn er 40 ára í dag og þessi elska fékk köku, söng og knús í morgunmat. Síðan fór hann í slysavarnaskólann þar sem honum verður hent út úr þyrlu og bjargað síðan eins gott að það fari vel.
Ég hef ákveðið að hlusta ekki á fréttir nú er það bara gömlu góðu geisladiskarnir og hætta þessari vitleysu.
Reynir minn hefur tekið unglingaveikina alveg á fullum hita, reyndi að díla við mömmu sína að hann þyrfti pásu frá hokkýinu en sorry mamman búin að borga og ekkert múður. En hann meiddist í gær og gat ekki tekið þátt í æfingunni (en ekkert sár fannst) en mamman lét hann sitja og horfa á. Honum finnst ég herstjóri og allt of ströng en ekki getur hann verið stjórnlaus við vitum hvernig það fer.
Auður er mjög upptekin að komast í kjólabúð og versla sér kjól fyrir afmælið meðan mamman er ekki búin að spá í kjól eða dressi kannski full afslöppuð en ég er búin að staðfesta salinn og spurning með matseðil, eins og auglýsingar hafa verið er það ekki bara slátur og rófur
nei ætti að reddast eitthvað annað þó svo vissulega að það sé gott og hollt slátrið.
jæja farin í vinnu og segi bara eigið góðan dag
Beta
8.10.2008 | 13:05
skoða jákvæða hliðar
Ég var að skoða spakmæli dagsins á www. velgengni.is og ákvað að birta það
- Velgengni er geta okkar til að halda áfram ferðinni í gegnum ófremdarástand -
Winston Churchill.
Það er bara að skoða lærdóminn af þessu og það birtir upp um síðir. Passa að standa saman.
Var að koma úr labbitúr og það er frábært veður úti og mæli með útiveru og fersku lofti
knús
Beta
6.10.2008 | 21:39
allt á uppleið
Mér hefur ekki liðið svona vel í all mörg ár. Er ástfangin og hamingjusöm. Ótrúlega heppinn að fá tækifæri að vakna hress ekki veik eða lömuð. Gleðst yfir því að börnin mín séu heilbrigð. Mér er eiginlega alveg sama um peninga og er mjög þakklát fyrir að búa á Íslandi þar sem maturinn er hollur og góður (fiskurinn og lambakjötið) Ég er óendalega þakklát að eiga fullt af vinum og góða fjölskyldu. Í kvöld þegar ég hef sagt góða nótt við börnin mín þá hlakka ég til að kúra hjá karlinum mínum og heyra "ég elska þig" ég gef skít í áhyggjur því á morgun veit ég að ég vakna glöð og hress og stekk framúr og byrja nýjan dag með fullt af gleði í hjarta og tekst á við það vandamál sem er t.d. í vinnunni og það að horfa á lánin mín hækka með von í hjarta að þetta lagist sem ég veit að gerir. Ég hef þurft að bíða og vona og veit að þessi bið tek ég ekki mjög nærri mér, því ég veit af annarri bið sem margir þurfa að berjast við sem er mun erfiðara verkefni og mín bið nú eru léttvæg.
Ég hlakka til framtíðarinnar þó ég viti að ávallt er samferða hamingja og erfiðleikar en annars væri ekkert gaman ef allt er auðfengið.
Hlakka til að gleðjast með vinum og ættingjum 1. nóv. 2008
Munum að það birtir um síðir
knús
Beta
1.10.2008 | 10:29
Ákvað að vera jákvæð og gleðjast
Það virðist sem allt sé að fara til andskotans og ég er nett pirruð vegna stöðu minnar í þessari blessaðri vinnu. SVIK OG SVIK
En ég er mjög ánægð að vera með góða menntun og nýti mér það nú að vinna sem næringarþerapisti og er að skipuleggja fyrirlestra og annað skemmtilegt.
Er að fara á Húsavík á fimmtudaginn til hennar Hrefnu minnar og við skipuleggjum afmælið örugglega yfir góðri steik og jihú ætla að fá mér góðannnnnnnnnnnnnn kaffi. Ekkert rauðvín þar sem ég keyri með djásnin mín og ég verð svo þreytt af þessum eðaldrykk þannig það gengur ekki.
Gunni og Pjakkur verða einir heima að læra og fara í göngutúra þessar elskur og algjörlega pottþétt að þeir kúri saman og verða mjög ánægðir báðir að hafa hvorn annan.
'EG verð að fara víst að plana okkar ágæta afmæli en ég er alveg pollróleg með þetta allt, ekki einu sinni að spá í dressi dísess
En hún Auður mín er alveg með þetta á hreinu.
Hlakka til að heyra meira frá ykkur
knús
Beta
29.9.2008 | 09:09
sæll
Er þetta bara ekki málið. Þarf endilega að tala við Glitnir fyrir afmælið og ath. hvort þá vanti ekki viðskipti og nenni að koma með einn jakkafata klæddan gaur og redda málunum eða þannig.
ágætt að byrja mánudaga á svona góðum fréttum. En oh my god hvað markaðsvæðingin er orðin klikkuð.
En búin að hringja og ætla að athuga málið sem allra fyrst.
kem út í plús trallala
|
Gjafahöfuðverkurinn læknaður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



skosmart
fosterinn
jonaa
hallarut
brandarar




